Spjallkubbur

..Augnablik

Auglýsing

Jólin eru að koma ...

Könnun

Hvort er betra, blóm eða nammi...

MSN

MSN-ið mitt er stelpa18@hotmail.com. Altlaf til í skemmtilegt spjall við vini og vandamenn sem eru ekki nú þegar inni .... :)

Nýjast á HumorPix

Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it… Funny Images, People who think outside the patterns are special! Funny Images, May the force be with you.

Prófíll

  • Nafn: Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
  • Netfang: asdishelga@hotmail.com
  • Staður: Hólar
  • Símanúmer: 8679522
  • Atvinna: Tamningakona/Reiðkennari C
  • Hjúskaparstaða: Á pikkföstu :)

Niðurtalning

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

Sumarið alveg að klárast...

23. ágúst 2008 klukkan 22:09
Jæja, þá er allt að ske...

Kominn 23.ágúst, úff alveg að koma september! Þá fer allt að verða gult, og svo hvítt og svo eitthvað meirr...

En það sem efst ber á baugi er svo mikið sem NÝ HEIMASÍÐA

http://www.123.is/kyrholt

ENDILEGA kíkja og gaman að fá kvitt fyrir :) Ógó flott og svakavinna búin að fara íetta, þangað koma allar helstu fréttir úr hestaheimi og haugurinn allur af myndum g myndböndum! :)

Helst að frétta er síðsumarsýningar sem verða miðvikudaginn næsta og þangað stefni ég með þrjár hryssur .. spennandi það! Læt ykkur vita hvernig það fer ef það fer ekki allt til fjandans :p

OG OG OG OG, allt að ganga í sölu á öllum eðalgæðingunum mínum, hann Hlynsi minn seldist í dag og tókum við uppí fimm vetra efnisfola. Heppinn eigandi er Sævar Haraldsson og Rakel kona hans keyptu hann sem reddí keppnishest. Folinn ungi frækni upp í kom heitir Hvinur og ER frá Litla-Garði af öllum stöðum, undan gæðingamóðurinni Elvu frá Árgerði og Tristan kallinum. Gaurinn er brúnstjörnóttur og að öllum líkindum alhliða hestur. Skemmtilegt verkefni þar fyrir konuna þar sem öll djásin eru seld og tröllum gefin ...

En allavega, bið að heilsa í bili! :) Tjékkið á nýju heimasíðunni ...

Kveðja Ásdís

Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
Engin athugasemd

Welcome MR. August!! :)

12. ágúst 2008 klukkan 23:54
Jæja, þá er ágústinn runninn upp bjartur og fallegur ... Verð samt að játa að mér líkar betur við myrkvaðar nætur en bjart allan sólarhringinn, létti því aðeins við að fá aðeins myrkur. ;) úúú myrkvavera !!

En ýmislegt er í gangi, var að setja inn slatta af ofurflottum hestamyndum sem ALLIR hafa gaman af að kíkja á .. svipurinn á mér er alveg gjörsamlega fáránlegur á næstum hverri einustu mynd af henni Von minni, ekki misskilja, mér líður ekki illa á baki á henni, ætli ég líti ekki bara svona út þegar ég einbeiti mér á baki .. úff maður ;) þarf að endurskoða þetta ...

En Einarstaðamótið ógurlega var síðustu helgi ... okkar liði gekk helvíti vel:

* Biggi sigraði töltið á henni Snældu frá Árgerði með 6,83 í forkeppni og 7,17 í úrsl.
* Við Von þreyttum frumraun í tölti og fengum 6,22 (efnilegt hmm)



* Gísli var nr. 7 með 6,50 á Þokkadís



* Afi gamli  Ármann skákaði okkur ungu og fór beint í A-úrsl með 6,61
* Biggi endaði nr. 3 í A-fl á Snældunni
* Við Von enduðum nr. 8 ALSÆLAR eftir MEGA úrslitareið


* Gísli prufaði B-flokkinn á Þokkadís og endaði nr.12
* Nanna endaði nr. 3 í ungl.flokki
* Biggi var efstur inn í A-úrslit í B-flokki á Hlyn eftir góða sýningu með 8,43 en ekki gengu úrslitin alveg sem skildi og brokkið sveik þá aðeins og enduðu í 6.sæti



Og margt fleira, alveg hrikalega skemmtilegt mót í alla staði!!

Við vorum einnig (eða ég) með æskulýðsdaga í vikunni áður (mán-fim) fyrir 16 hressa krakka úr Þingeyjarsýslu og gekk það ofurvel, var með frábæra aðstoðarmenn, Nönnu mán og þri og svo Gísla og Katrínu frænku hans mið og fim. Gekk svakavel og skemmtum við okkur vel.

Ferðinni er svo heitið austur um helgina, mæta á opnunarhátíð hestamanna í Fossgerði á Egs og fagna hálffimmtugsafmæli mínu í faðmi austulandsins :D Hlakka hrikalega til að hitta alla og knúsa og allt :) Mætum á svæðið á fim.kvöld og förum sun.kvöld. Verðum með þrjá gæðinga með okkur til að skemmta okkur með fossgerðisbúum á hátíðarhöldum þeirra, þ.e keppni og ræktunarbússýningu :)

Annars ... hmm, ekki mikið óhestatengt í fréttum... Yess sör íííí, lífið er hestar, snýst um hesta! Ekki lífstíll fyrir ekki neitt .. ;)

Sumarkveðja Ásdís Helga
Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
2 athugasemdir

Margt í gangi...

31. júlí 2008 klukkan 22:45
Heyhey


Jæja gaman gaman

Frábært sumar í gangi, mikið riðið út og margt að gerast ...
Það sem helst ber að nefna síðan síðustu bloggfærslu..


* Að sjálfsögðu Landsmót ...
* Það var svosem fínt, glæsileg hross auðvitað en slatti af vanköntum ..
* Von og Spakur stóðu sig með sóma ...
* Ræktunarbúið gekk vel en var aðeins ruglingslegt, skiptum um hross við afi, ég reið Snældu og hann Von ...
* Kepptum svo á Fákaflugi og var Von þar í úrslitum í A-flokki og Spakur í B-flokki og tölti...
* OG er svo búin að selja litla barnið mitt, títtnefndan Spak :S
* Og Kraftsdótturina hana Birtingu..
* Þau fóru saman .. MIKIL EFTIRJÁ



* Ég er búin að eignast litlan frænda ..
* TIL HAMINGJU ÁSTA OG HINNI!!
* Erum að fara að halda æskulýðsdaga í næstu viku, mán-fim og svo er Einarsstaðamótið heldina eftir..
* Ég hef bara hana Von litlu núna og fær hún að spreyta sig í tölti :)
* Svo stefni ég með tvær hryssur í kynbótadóm á síðsumarsýningu..
* Þær eru þrælgóðar!
* Er svo djúpt sokkin að ég geri ekkert nema ríða út um versló ..
* Út af æskulýðsdögunum ..
* Jesús ..
* Svona er lífið maður ..
* Komnar inn slatti af myndum af honum Spak litla í myndaalbúmið..
* Er að fara austur um miðjan mánuðinn..
* Það verður opnunarhátíð á Egs í Fossgerði 16-17 ágúst ..
* Jebbjebb, held þar upp á hálffimmtugsafmælið mitt !! :D
* Vonast til að hitta sem flesta!

Heyri í ykkur seinna sætulíusar ..

Njótið góða veðursins!!

Adios Ásdís Helga
Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
5 athugasemdir

MYNDIR NÝJAR MYNDIR !!!

22. júní 2008 klukkan 20:29
Allir að kíkja í Myndafjörið og sjá myndir frá gæðingakeppni Funa þar sem okkar fólk raðaði inn LM fararmiðum !! :)  sérstaklega flottar myndir af honum Hlynsa mínum sem er í fantaformi núna á leið á Landsmót :)
Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
4 athugasemdir

Mjo mjo

19. júní 2008 klukkan 19:24
Jæja jæja .. ýmislegt hefur gerst og flest (allt) hestatengt ;)

Kem með stutt yfirlit eða eins og ég nenni ...

Ég skellti mér aftur með Vonina í dóm til að freistna þess að koma henni yfir áttuna og viti menn það tókst ;) Hækkaði úr 7,93 í aðaleinkunn í 8,02 og var ég bara ansi sátt við hnátuna!





Von frá Árgerði á tölti



Og Vonin á skeiði...



Svo skellti ég þyngingunum bara á eftir sýninguna beint á gæðingakeppni léttis og funa sem var einnig úrtökumót fyrir landsmót og gekk það bara djöfulli vel, alveg fyrsta sinn sem Vonin fór á hringvöll og fyrsta gæðingarmótið hans Spaks. Fann myndir af Von á www.lettir.is sem mig langaði að deila með ykkur hér fyrir ofan :)


því miður voru ekki myndir þar af Spak heldur bara úr A-flokknum en fann samt eina ágætis mynd af kallinum á www.fimhestar.is og ég þakka bara kærlega fyrir þessar flottu myndir!! En hvernig gekk mótið? Tjah það er nú það, Spakur var ekki alveg í stuði í forkeppni en stóð sig samt vel, fengum 8,30 í forkeppni og vorum í sjötta sæti inn í úrslit í heildina og nr.2 af Funamönnum sem þýddi farmiða á LM :) Enduðum svo í fjórða sæti í úrslitunum með 8,35. Jafnvægið var ansi að stríða honum greyinu í úrslitinum og var langt frá sínu besta á brokki og yfirferðartölti en hæga töltið var í topplagi. Prufaði svo að fara með hann í tölt í fyrsta sinn einnig og gekk það djöfulli vel fyrir utan ein mistök á yfirferðinni en útkoman var 6,8 - 6,2 - 6,8 - 6,3 - 6,8 = 6,67 og var ég ansi sátt við það!



Vonin stóð sig einnig vel í frumraun sinni á öðru en kynbótahlífum og á hringvelli og kom út úr forkeppni með 8,27 og fimmta inn í úrslit og efst frá Funa og annar farmiði á LM þar ! :) En þau eru bæði eingöngu sex vetra og algjörir hringvallargrænjaxlar sem eiga ekkert í hákarlana á LM að gera svo við gefum eftir okkar sæti tvö og þá detta inn tvö hjá honum Bigga kallinum í staðinn, þau Hlynsi og Snælda (forkeppnin gekk ekki sem skyldi þarna um helgina með þessa gæðinga) þannig að það er toppmál að afhenda LM-farmiðana til þeirra. En þau fara samt sem áður bæði á LM, Spakur sem afkvæmi með karli föður sínum honum Hágangi sem er í fjórða sæti til 1.verðlauna fyrir afkvæmi og Vonin í ræktunarbússýningu frá Árgerði.

Hey, ég hef samt smá ekki hestatengt að deila með!
Ég er náttla mergjað mikill svefnvírdó, hef náttla haft mínar "svefntruflanir" (þið sem þekkið mig vel vitið hvað ég meina) en nú er nýtt af nálinni, nú er ekki lengur ókunnugur sem situr um mig... neineinei, heldur sef ég og hef alltaf sofið rótt og vel við hlið mínum heittelskaða nema núna sirka þrisvar hef ég vaknað um miðja nótt eitthvað asnalega og bara hhhhcccchhhhhhuuuuu (svona hræðsluinnsog) HVER ER ÞETTA ????? ÓKUNNUGUR MAÐUR Í RÚMINU MÍNU.... svo bara, shit fokk jæks búmm búmm búmm búmm ... þori ekki að hreyfa mig, svo bara bíddu bíddu, slaka á, anda inn anda út, hugsaðu vel, já hey bíddu, já þetta er Gísli minn... ohhh léttir, knúsa hann og sofna svo eins og ungabarn ...

ER ÞETTA EÐLILEGT?????????????

Bara gaman það!!
hestar

Jæja komið nóg í bili .... hestar hestar hestar og meiri hestar !! ÞAÐ ER LÍFIÐ :D

ADJÖ Ásdís hestakona
Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
Engin athugasemd

Kynbótasýningar, sumar og sól!! :)

01. júní 2008 klukkan 21:12
Jæja gott fólk

Afsakið hlé...

Þetta eru tímar sólarinnar og margra áríðandi verkefna þannig að bloggið situr á hakanum. En ég ætla að reyna að skrifa reglulega (svona mánaðarlega) og segja ykkur fréttir! :) Síðan síðast hefur lítið gerst sem snertir ekki hesta. Reyni að skrifa tvo dálka, hestatengt og ekki hestatengt.

Hestatengt:
Það er allt á fullu í hestunum. Erum með haug af hrossum á járnum og gengur þjálfun vel, erum með megaefnilegar hryssur á fjórða sem bæta sig og bæta dag hvern, sérstaklega brún undan Rökkva og Tign og önnur leirljósblesótt undan Hróðri og Þörf. Þær verða svakalegar báðar tvær en gjörólíkar !! :)
Spakur minn er allur að verða skemmtilegur, búin að brjóta ísinn á tveimur stöðum, búin að prufa að fara með hann á íþróttamót og í kynbótadóm.
Íþróttamótið gekk ágætlega, efnilegur þar í tölt og fjórgang en kynbótadómurinn gekk mjög flott. Læt hann fylgja með:

Héraðssýning kynbótahrossa á Sauðárkróki


Dagsetning móts: 28.05.2008 - Mótsnúmer: 06

Íslenskur dómur

IS-2002.1.58-646 Spakur frá Dýrfinnustöðum


Sýnandi: Ásdís Helga Sigursteinsdótt


Mál (cm):

141   136   66   140   29,0   18,0  

Hófa mál:

V.fr. 7,7   V.a. 7,5  

Aðaleinkunn: 7,98

Sköpulag: 7,94

Kostir: 8,00


Höfuð: 8,0
   Skarpt/þurrt  

Háls/herðar/bógar: 8,5
   Grannur  

Bak og lend: 7,0
   Beint bak   Gróf lend  
  Vöðvarýrt bak

Samræmi: 8,0
   Fótahátt   Flatar síður  

Fótagerð: 8,5
   Öflugar sinar   Þurrir fætur  

Réttleiki: 8,0
   Afturfætur: Útskeifir   Nágengir  
   Framfætur: Réttir  

Hófar: 7,0
   Lágir hælar   Útflenntir  

Prúðleiki: 7,0

Tölt: 8,5
   Taktgott  

Brokk: 8,0
   Taktgott  

Skeið: 5,0

Stökk: 8,5
   Teygjugott  

Vilji og geðslag: 9,0
   Ásækni   Þjálni  

Fegurð í reið: 8,5
   Góður höfuðb.   Mikill fótaburður  

Fet: 8,0

Hægt tölt: 8,5

Hægt stökk: 8,5

Fínasti klárhestadómur þarna á ferð.

Sýndi líka hryssuna Von frá Árgerði 6v. sem ég hef þjálfað fyrir ömmu síðan í febrúar, fékk hana reiðfæra þá. Frekar undarleg en stórgóð hryssa sem á inni meira segja, undan Kjarna frá Árgerði, hún fékk 8,08 fyrir byggingu og 7,83 fyrir hæfileika og 7,93 út og á slatta inni. 100% 1v. meri. Sjáum til hvort maður skelli sér með hana aftur með von um að komast upp um þessar örfáu kommur sem skilja að 1 og 2. verðlaunin ;)
En er alltaf að kenna tvær helgar í mánuði og held því áfram í sumar. Er að fara austur á fimmtudag og kenni þar næstu helgi og fer svo helgina þar á eftir norður í eyjafjörð í félagsmót funa + úrtöku fyrir Landsmót. Við Spakur skreppum og prófum gæðingavöllinn í fyrsta sinn og gaman verður að sjá útkomuna þar, mætum Hlynsa boy og Bigga og Mola frá Skriðu veit ég allavega um. Fer svo jafnvel með Von í A-flokk og tjékka á því. Gaman að mæta með glænýtt og ungt og prufa sig áfram. Svo er kennsla í Torfunesi helgina þar á eftir og þá fer nú bara að líða að Landsmóti ;) ÞAR VERÐUR GAMAN!!!!!

Vona að einhverjar myndir af jörpu litlu gæðingunum mínum munu koma einhvers staðar inn og þá hnupla ég þeim og sýni ykkur ..

Ekki hestatengt:
Hmmm, kem austur eins og áður sagði næsta fimmtudag en verð heima á Neskaupstað á föstudeginum og laugardagskveldið :)Yrði ógó gaman að hitta ykkur elskurnar mínar !! :D Ömurlegt að komast ekki heim þessa helgi (sjómannadagshelgina) en yfirlitssýningin var bara í gær, fyrir ykkur sem ekki vita þá fylgir kynbótasýningum alltaf yfirlitssýning þar sem maður sýnir hrossin aftur.

Vá lífið snýst um hesta .. Sjúfferí búfferí .. Þið mínir elsku vinir og ættingjar hafið hér með loforð um að ef þið komið til mín í heimsókn hingað í Skagafjörðinn þá hef ég gistingu fyrir ykkur (ef ég er heima auðvitað) OG ég get boðið ykkur á bak!! :D

Plís kvittið eitthvað skemmtilegt til og fyrir mig/mín !! Svo gaman af því ... hehe hver hér veit ekki hvað kynbótasýning er ?!

OVERANDOUT ÁSDÍSHELGASIGURSTEINSDÓTTIR

Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
2 athugasemdir

Vorið er komið og lundirnar (grundirnar) gróa... tralla la lala

14. apríl 2008 klukkan 22:18
Jæja fallega fólk ...

Ætla að hefja færsluna á pottþéttri leið fyrir okkur kvensurnar að LOKSINS spara aurana okkar ... þ.e.a.s ef þeir litu svona ÚT


Meðfylgjandi grein:
"Konur hafa löngum verið þekktar fyrir það hve duglegar þær eru að spreða peningunum sínum í fín föt, skart og aðrar munaðarvörur. Þær láta verðbólgu og slæmt gengi krónunnar ekkert á sig fá og spreða og spreða, skreppa út í verslunarferðir með vinkonunum,  detta í hádegismat á fínum veitingarstöðum ofl ofl. Eyðslugenið virðist blunda meðal þeirra allra og þrátt fyrir að fjárhagur leyfi það ekki þá er erfitt að ganga fram hjá fallegum stígvélunum út í búðarglugga án þess að eignast þau, sérstaklega þar sem nú er hægt að taka allt á raðgreiðslum. Hér er aftur á móti ágætis tillaga sem gæti fengið dömurnar til að passa betur uppá seðlana sína. "

Híhí, við þessa fróðlegu lesningu læddist bros yfir varir mínar og ég var tilneydd til að deila þessu með ykkur ;)

En fréttir fréttir fréttir ...
Suprise suprise mestmegnis hestafréttir (bara smá viðvörun), en einnig eitthvað af fréttum sem innihalda ekki ferfætlinga ...

Hestafréttir:
Ég var að kenna síðustu tvær helgar, þarsíðustu helgi skutluðumst við hjú austur um heiðar það er til Egilsstaða, ég kenndi þar sirka 20 manns og var þetta önnur helgin okkar og bara gaman, skemmtilegar framfarir og alveg hreint endalaust áhugasamt og lærdómsfúst fólk þarna (50/50 fullorðnir og unglingar). Gísli skutlaði járnum undir yfir tuttugu ferfætlinga og fórst það vel úr hendi og skunduðum við hjú heim á leið á sunnudagskveldi glöð eftir helgina ...
Svo nýliðna helgi fór ég í Torfunesi og kenndi þar mína aðra helgi einnig og gekk það einnig mjög vel. Þar eru bara börn og unglingar og feiknaskemmtilegur hópur.

Svo er riðið út allan daginn út og inn og gengur það flott ... :) Við Spakur boy þreyttum frumraun okkar í fjórgangi um daginn í Skagfirsku mótaröðinni. Tók alveg sjénsinn, hafði hvorki farið með hann í reiðhöllina á króknum áður né á hringvöll og við létum bara flakka með fínasta árangri. Fórum í 6,20 á áttum hringinn og með kvartbúts (btw, hann þolir þyngd en tók ekki sjénsinn) og vorum þriðju í úrslit og enduðum 3-4 .. Hann var ekkert of hrifinn af þessari úrslitareið .. Eiginlega illa pirraður og leiðinlegur en það skal bara unnið sig út úr því ... En þetta er ágætis byrjun! Allt stefnir í að hann verði klár á keppnisvöllinn í sumar, eflist og eflist þessa dagana, breyttum járningunni, áttur+kransar+P3 fylliefni að framan og sexur að aftan og breytingin var hrikalega jákvæð og skemmtileg! Tölum um sveiflu :)

Jæja nóg um hesta !!

Almennar fréttir:
Síðasta snocrossmót vetrarins var um síðustu helgi og stóðu brósarnir mínir sig með ágætum! Ármann endaði annar til Íslandsmeistara í heildina litið í Sportflokki og var einnig í öðru sæti á þessu móti en Sæsi litli var eitthvað óheppinn enn eina ferðina í meistaraflokknum og það er ekkert grín að tapa eitthvað ferð þar því þá eru samkeppendur komnir hálfum kílómetrer á undan, þvílík ferð á þessum gaurum maður!!! En ekkert smávegis stolt af þeim samt :D

OG næstu helgi skal reiðbuxum og reiðskóm pakkað niður svosem sem eina kvöldstund og konan dressuð upp og skundað á kvk-kvöld með stelpunum!! Hef varla litið af hestunum núna á fjörðu viku án frís og þarna skal SKEMMT sér !! Hlakka ekkert eðlilega til ....

Hehe, ekki mikið um ekki hestafréttir ... En eitthvað þó! Minni á að Sauðárkrókur er í alfaraleið ef þið eigið leið um þá má alveg bjalla og kíkja í kaffi :)

KVITT ERU VEL ÞEGIN!!!! :)

Knús og Kossar Ásdís Helga
Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
8 athugasemdir

Vor í lofti og kvef í fólki ...

25. mars 2008 klukkan 17:42
Heyhallihúbba .. !!

Vá, er ekki alveg að nenna að blogga þessa dagana !! Sósorry .. En hér kemur heiðarleg tilraun til þess ..

Hef nú eitt og annað gert af mér síðan ég bloggaði síðast, skrapp á Mývatn á Snocross að sjá strákana mína bruna og var það gaman, matur og ball og sjúkrahúsferð á akureyri var innifalið þar sem Sæþór datt og grunur um höfuðkúpubrot.. En hann var heill :)

Svo er ég kennandi aðra hverja helgi þessa dagana, annars vegar á Egilsstöðum og hins vegar á Torfunesi og gengur það vel og er svakalega gaman!! :) ríð svo út eins og ég mögulega get þess á milli og gengur vel með hrossin mín ..

Hlynsi boy er í góðum höndum hjá Bigga í Litla-Garði og er ég með hryssu fyrir hann í staðinn .. alltaf gott að skipta um knapa annars slagið! Það á jafnvel að fara að prófa að fikta aðeins við skeiðið í honum, sjitt ef það er til staðar og töltið helst þá er maður með MASSA A-flokkshest ! Úff! Hann er búinn að keppa svoldið á honum, fór með hann austur á Egs og varð þar fjórði í B-flokk með 8,49 í einkunn, fór á Mývatn og var fyrsti fyrir utan úrslit með 6,50 í tölti og svo fór hann á Svínavatn og var þar AFTUR fyrsti fyrir utan úrslit með 8,37 minnir mig... Smelli með nokkrum myndum af honum :)







Skemmtilegur hestur, hæga töltið loksins orðið gott ! Hann var að fá jafnar einkunnir fyrir allt fyrir austan .. var t.d í öðru sæti í úrslitunum eftir hæga töltið í B-fl :)

P.s fleiri myndir í myndaalbúminu undir titlinum Ístölt :) Tjékk it out

Hmmm, ekki hestafréttir ... Lífið gengur vel, var hér í Skagafirði yfir páskana í faðmi tengdafjölskyldunnar Hlæjandi 

Hmm, man samt ekki eftir fleiru í bili, reyni að blogga sem fyrst aftur en endilega KVITTIÐ ... nenni þessu varla ef ég hef tapað öllum mínum lesendum .. hvað segiði, á ég að klóra eitthvað í bakkann með þetta og reyna að bæta mig eða bara hætta þessu ???!! :)

Knús í klessu og páskakveðja, Ásdís Helga
Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
7 athugasemdir

Játningar skammdegisins ....

11. febrúar 2008 klukkan 21:53

Kem hér með blogg í játningapunktaformi:!

* HÆ
* Skemmti mér ógeðslega vel á þorrablóti á Hofsósi um helgina
*Veislustjóri var Biskupinn og var hann hrikalega fyndinn!!!
* Einn af betri bröndurum hans; (aðeins Hólakunnugir fattann ;))
 = Landbúnaðarráðuneytið hefur neyðst til að hætta að styrkja Hólaskóla af sérstökum ástæðum. Geitastofninn á Íslandi er í útrýmingarhættu og á Hólaskóli sinn þátt í því, það voru nefnilega 40% af geitastofninum notaður í kápuna hans Skúla Rektors ... og hugsið ykkur ef Halli í Enni væri rektor! HAHAHAHAHA

* Þið sem fattið hann ekki, óheppin þið!

* Ég er orðin dauðþreytt á vindum og veðrum!

* Er orðin ansi veðurbarin.

* Stefni á Bautatölt næstu helgi.

* Með Hlynsa Boy of kors

* Ég klúðraði þessari meistaradeild úrtöku svo svakalega að sögur fara ekki af öðru eins

* Átti nú eftir að viðurkenna það hér ...

* Hlynur var ekki að höndla svellið sem var fyrir utan reiðhöllina í upphituninni og var úber klárgengur

* Vissi ekki alveg hvar ég hafði hann og létti hlífarnar

* Kem svo inn með svakaprógram í huga og nú átti að taka á því

* En NEI, um leið og á gólfið er komið var það LULL og ég hugsaði .. hlýtur að lagast (hafði ákveðið að taka yfirferð og svo hægt tölt) og kláraði yfirferðina á LULLI+
* Ákvað þá að geyma hæga töltið og hinar gangtegundirnar gengu ágætlega
* En Tauganar höndluðu þetta ekki og allar snúrur í haus mínum duttu úr sambandi og ...
* ÉG GLEYMDI AÐ SÝNA HÆGA TÖLTIÐ!!
* En þessir "yndislegu" dómarar ákváðu að beygja reglurnar og gefa mér einkunn, þ.e lægstu einkunn sem ég hef fengið á ævinni .. 3,80! ARG
* En ljósu punktarnir eru að ég veit vel að töltið í hestinum er frábært og ekkert vandamál svosem þar en þær gangtegundir sem voru erfiðar í fyrra voru í betra lagi þarna ... FET og STÖKK :D
* Ég hálfvorkenni Britney greyinu ..
* Er nebbla að fíla lagið hennar .. wanna piece of me .. í ræmur!!
* Ég á alveg hrikalega góð hross !!!
* Hlynur, Spakur og Birting eru alveg æðislegir gæðingar upp til hópa!!
* Er einnig að frumtemja eina af efnilegri hryssum sem ég hef séð , fyrir tengdó!
udan Rökkva frá Hárlaugsstöðum
* 4.v stór og þvílíkar hreyfingar!
* Hmm, mér dettur eiginlega ekki mikið fleiri játningar í hug til að deila með ykkur ...

Bið bara að heilsa í bili ...

Kærlig Hilzen Ásdís Helga

Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
2 athugasemdir

Þorrinn !!

09. febrúar 2008 klukkan 16:00
Jæja ... þá er þorrinn kominn með látum! :)

Þorrablót í kvöld með öllu tilheyrandi !!

Útreiðar ganga flott fyrir utan veðurógeðið sem hrjáir landann þessa dagana !! Arg, það er ekki á tamningamenn lagt að lifa í svona furðudæmum!

Skrifa betur síðar ..

Ætla að skemmta mér ógeðslega vel í kvöld og skrifa um það betur ásamt hinum fréttunum sem ég man ekki eftir í augnablikinu :)

Hilzen Ásdís

P.s þið sem eruð í sömu hugleiðingum og ég í kvöld ... Gangið hægt um gleðinnar dyr og ekki gera neitt sem ég myndi gera ;) hehe
Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
1 athugasemd